Annar sigurinn í röð og stelpurnar leika um 17.sætið
(HSÍ)

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri vann sinn annan leik í röð á EM sem fram fer í Svartfjallalandi og hefur tryggt sér leik gegn Noregi í leik um 17.sætið á mótinu eftir sigur á Austurríki í kvöld, 31-27.

Austurríska liðið byrjaði töluvert betur í leiknum og komst í 6-2 en þá kom góður kafli hjá stelpunum sem voru komnar tveimur mörkum yfir 11-9 stuttu síðar. Ísland leiddi í hálfleik 17-14.

Íslenska liðið gaf heldur betur í, í seinni hálfleik og komst mest níu mörkum yfir 29-20. Þær héldu því forskoti út allan leikinn og uppskar að lokum 31 - 27 sigur.

Danijela Sara Björnsdóttir var frábær í marki Íslands í leiknum með hátt í 50% markvörslu. Ebba Guðríður var markahæst í liði Íslands með níu mörk.

Allir útileikmenn Íslands komust á blað í leiknum.

Markaskor Íslands: Ebba Guðríður Ægisdóttir 9 mörk, Vigdís Arna Hjartadóttir 4, Roksana Jaros 4, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Hekla Sóley Halldórsdóttir 2, Alba Mist Gunnarsdóttir 2, Eva Steinsen Jónsdóttir 1, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 1, Eva Lind Tyrfingsdóttir 1, Laufey Helga Óskarsdóttir 1, Klara Káradóttir 1, Guðrún Ólafía Marinósdóttir 1, Valgerður Elín Snorradóttir 1

Markvarsla: Danijela S. Björnsdóttir - 16 varðir, Erla Rós Viktorsdóttir - 2 varðir (þar af eitt víti)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top