
Torfi Geir Halldórsson er sennilega nafn sem ekki allir kannast við en einhverjir hafa þó heyrt um. Torfi Geir var af mörgum talinn einn efnilegasti handboltamaður landsins er hann lék í yngri flokkum Fram þar sem hann raðaði inn mörkunum og var lykilmaður í gríðarlega efnilegum 2004 árgang Framara. Torfi hætti þó í handbolta eftir tímabilið 2019/2020 og valdi að stunda knattspyrnu þar sem hann var einnig talinn gríðarlega efnilegur markvörður en í desember 2019 fór hann til að mynda á reynslu hjá danska stórliðinu FC Kaupmannahöfn. Það varð hinsvegar ekki meira úr knattspyrnuferli Torfa en að skipta úr Fram yfir í Val, síðan í Breiðablik og síðast lék hann með Haukum í 2.deild karla síðasta sumar. Nú hefur hann snúið til baka á handboltavöllinn og stefnir á endurkomu en hann hefur verið að æfa með Íslands- og bikarmeisturum Fram undanfarnar vikur og lék til að mynda með liðinu í æfingaleik gegn U19 ára landsliði karla í síðustu viku. ,,Hann ætlar að vera með og er að æfa með okkur á fullu. Það er einungis spurning hvað það tekur langan tíma fyrir að hann að komast í gang aftur," sagði Einar Jónsson þjálfari Fram í samtali við Handkastið. Eins og fyrr segir var Torfi Geir gríðarlegt efni fyrir nokkrum árum í sterkum 2004 árgangi Framara og var til að mynda valinn maður leiksins er Fram varð Íslandsmeistari í 4.flokki yngri tímabilið 2019/2020 en hann átti stórleik í úrslitaleiknum gegn ÍR og skoraði 13 mörk. Á síðasta tímabili sínu í 4.flokki eldri var tímabilið flautað af vegna heimsfaraldurs en þá var Framliðið á toppi 1.deildar. Torfi Geir er sonur handboltaþjálfarans, Halldórs Jóhanns Sigfússonar sem þjálfar í dag HK. Það verður gríðarlega spennandi að sjá Torfa Geir aftur á vellinum í vetur í liði Fram sem þarf heldur betur á styrkingu að halda enda langt og strangt tímabil framundan hjá liðinu sem hafa misst lykilmenn út í atvinnumennsku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.