Telja bilið á milli bestu og slökustu liðanna hafa aukist
Egill Bjarni Friðjónsson

Mögulegt aukið bil á milli efstu og neðstu liðanna í Olís-deild karla var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Þar veltu Sérfræðingurinn og Einar Ingi Hrafnsson því fyrir sér hvort munurinn á styrkleika liðanna hefði aukist frá síðustu leiktíð.

Nokkrir stórir sigrar hafa litið dagsins ljós í Olís-deildinni á tímabilinu og telja þeir að sterkustu lið deildarinnar virðist eiga auðveldara með að vinna stórsigra gegn þeim liðum sem eru í neðri hlutanum.

„Það sem ég hef verið að velta fyrir mér er hvort bilið á milli bestu og lélegu liðanna hefur aukist frá síðustu leiktíð,“ sagði Sérfræðingurinn í nýjasta þætti Handkastsins.

Einar Ingi tók undir þessar vangaveltur og benti á að hraðinn í leiknum og minni áhersla á varnarleik gæti haft meiri áhrif á þau lið sem standa höllum fæti.

„Ég er sammála því og það er meira um það að efri liðin eru að rústa neðri liðunum. Ég veit ekki orsökina en þessi hraði og minni varnarleikur virðist bitna á lélegu liðunum,“ sagði Einar Ingi.

Sérfræðingurinn velti því jafnframt fyrir sér hvort breytingar á leikmannamarkaðnum hefðu áhrif á styrkleikamun liðanna. Hann benti á að félög sem hefðu minni breidd í leikmannahópnum ættu erfiðara með að missa lykilmenn á meðan sterkustu liðin nytu meiri stöðugleika.

„Kannski líka að það er minni leikmannamarkaður og það er verið að kroppa í liðin sem mega ekki við því að veikjast og á sama tíma er meiri stöðugleiki í efri liðunum,“ sagði Sérfræðingurinn og nefndi FH, Hauka, Val og Aftureldingu sem dæmi um lið sem hefðu meiri stöðugleika.

Einar Ingi sagði þessa þróun einnig kalla á aukna áherslu á uppbyggingu og yngri flokka hjá félögunum.

„Krafan um að þú búir til þína eigin leikmenn er orðin miklu, miklu meiri,“ bætti Einar Ingi við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top