Sneri aftur eftir 367 daga fjarveru
Andreas Gora /AFP

Þýski landsliðsmaðurinn Fabian Wiede sneri aftur á handboltavöllinn í gær eftir rúmlega árs fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla. Wiede, sem leikur með þýska stórliðinu Füchse Berlin, sleit krossband í hægra hné í leik gegn Veszprém í Meistaradeild Evrópu 23. október á síðasta ári.

Hann hefur síðan þá unnið að endurhæfingu og var loksins kominn aftur í leikmannahóp Füchse Berlin þegar liðið tók á móti Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Alls voru liðnir 367 dagar frá því Wiede meiddist þar til hann sneri aftur á völlinn. Endurkoma hans vakti mikla athygli í Max-Schmeling-Halle í Berlín þar sem stuðningsmenn Füchse fögnuðu honum vel þegar hann bjó sig undir að koma inn á völlinn í fyrri hálfleik. Wiede lét ekki þar við sitja heldur skoraði sitt fyrsta mark eftir endurkomuna skömmu síðar.

Füchse Berlin vann leikinn 36-30 eftir að hafa verið 18-14 yfir í hálfleik.

„Þetta var virkilega falleg stund. Ég hef unnið lengi að þessu og síðustu næturnar hef ég hugsað mikið um hvernig þetta yrði. Ég er mjög ánægður með að allt gekk vel,“ sagði Wiede eftir leikinn.

Hinn 32 ára gamli Wiede hefur leikið allan sinn atvinnumannaferil með Füchse Berlin og er einn reynslumesti leikmaður félagsins.

Samningur hans rennur út næsta sumar og óvissa ríkir um framtíð hans hjá félaginu, ekki síst vegna væntanlegrar komu franska landsliðsmannsins Dika Mem frá Barcelona. Wiede hefur þó lýst því yfir að hann vilji halda áfram að spila handbolta og er endurkoman því mikilvægt skref fyrir hann eftir langa og erfiða endurhæfingu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top