Tveir íslendingar í liði umferðar í þýsku úrvalsdeildinni
Swen /AFP

Lið 10. umferðar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta hefur verið valið. Sjö leikmenn komust í úrvalslið umferðarinnar eftir góða frammistöðu með sínum liðum. Þar á meðal eru Íslendingarnir Sigvaldi Guðjónsson og Reynir Þór Stefánsson.

Matej Mandić (SC Magdeburg)

Matej Mandić markvörður Magdeburg átti góðan leik er Magdeburg sigraði Rhein-Neckar Löwen. Mandić varði 15 skot sem samsvaraði 40% hlutfallsmarkvörslu.

Marcel Schiller (Frisch Auf Göppingen)

Marcel Schiller átti frábæran leik þegar Göppingen sigraði Eisenach 34–26. Schiller skoraði 7 mörk, þar af sex úr vítaköstum, og gaf eina stoðsendingu.

Reynir Þór Stefánsson (MT Melsungen)

Reynir Þór Stefánsson átti frábæran leik þegar Melsungen vann nauman útisigur á Balingen, 27–26. Reynir skoraði 8 mörk og var markahæsti leikmaður Melsungen í leiknum

Dominik Mappes (HSG Wetzlar)

Dominik Mappes átti góðan leik er Wetzlar töpuðu fyrir Berlin. Mappes skoraði 7 mörk og gaf 5 stoðsendingar í leiknum.

Mathias Gidsel (Füchse Berlin)

Mathias Gidsel átti frábæran leik er Berlin sigraði Wetzlar. Gidsel skoraði 12 mörk, gaf 7 stoðsendingar og stal boltanum fjórum sinnum.

Sigvaldi Guðjónsson (Hannover-Burgdorf)

Sigvaldi Guðjónsson átti góðan leik þrátt fyrir 29–26 tap Hannover-Burgdorf gegn Lemgo. Sigvaldi skoraði 5 mörk í leiknum.

Emil Bergholt (SG Flensburg-Handewitt)

Emil Bergholt línumaður Flensburg átti góðan leik er liðið tapaði fyrir Gummersbach. Emil skoraði 5 mörk í leiknum og gaf eina stoðsendingu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top