Afturelding leikur í Myntkaup höllinni
Afturelding handbolti)

Gunnar Pétur Haraldsson - Patrekur Maron Magnússon (Afturelding handbolti)

Handknattleiksdeild Aftureldingar og Myntkaup hafa undirritað samstarfssamning um nafngift á íþróttamiðstöðinni að Varmá, sem mun héðan í frá bera nafnið Myntkaup höllin.

,,Samkomulagið markar mikilvægt og jákvætt skref fyrir félagið og framtíðarstarf þess. Með þessu samstarfi verður Myntkaup eitt af helstu bakhjörlum handknattleiksdeildar Aftureldingar og afreksstarfi félagsins," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu sem samningurinn er til þriggja ára.

,,Við hjá Myntkaupum erum gríðarlega ánægðir að fá að taka þátt í og styðja við það frábæra íþróttastarf sem Afturelding starfrækir í Mosfellsbæ. Teymi Myntkaupa er með sterk tengsl við Mosfellsbæinn og með þessum samstarfssamningi er hafin jákvæð og spennandi vegferð fyrir báða aðila og íbúa í Mosfellsbæ. Afturelding og Myntkaup eiga það sameiginlegt að vera félög á uppleið sem ætla sér stóra hluti í framtíðinni og það verður gaman að fá að taka þátt í sigrum félagsins á næstu misserum. Áfram Afturelding," segir Patrekur Maron, framkvæmdastjóri Myntkaupa.

Fyrsti leikur Aftureldingar í Myntkaup höllinni verður í næstu viku þegar liðið fær Íslands- og bikarmeistara Fram í heimsókn fimmtudaginn 2. október.

Á myndinni eru þeir Patrekur Maron Magnússon framkvæmdarstjóri Myntkaupa og Gunnar Pétur Haraldsson stjórnarmaður Handknattleiksdeildar Aftureldingar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top