Grill 66 karla: Fjölnir hafði betur gegn Eyjamönnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson skoraði 8 mörk (Þorgils Garðar Gunnþórsson)

Fjölnismenn tóku á móti Vestmannaeyingum í Grafarvoginum í dag í 6.umferð Grill 66 deildar karla.

Fjölnir hafði undirtökin allan leikinn og voru komnir með 5 marka forystu eftir um 10 mínútna leik.

Þeir héldu því forskoti út fyrri hálfleikinn og leiddu með 6 mörkum í hálfleik 19-13.

Fjölnismenn tóku fótinn ekki af bensíngjöfinni í síðari hálfleik og náðu með 9 marka forskoti 29-20.

HBH menn náðu aðeins að klóra í bakkann undir lokin og lokatölur urðu 37-30

Með sigrinum náðu Fjölnismenn að spyrna sér frá neðri hluta deildinnar upp í 7.sæti með 5 stig. HBH sitja í 11. sæti deildarinnar með 2 stig.

Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson og Þorleifur Rafn Aðalsteinsson voru markahæsti Fjölnismanna með 8 mörk í dag meðan Hinrik Hugi Heiðarsson og Heimir Halldór Sigurjónsson skoruðu 5 mörk fyrir HBH.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top