Giorgi Dikhaminjia (Egill Bjarni Friðjónsson)
Fyrsti leikur dagsins í Grill 66 deild karla var að klárast. Það voru Valur 2 sem gengur Gróttu í heimsókn til sín á Hlíðarenda. Valsmenn byrjuðu leikinn miklu betur og komust 5-2 eftir um 5 mínútna leik og var Jens Sigurðarson í miklum ham í upphafi leiks í marki Valsmanna. Valur héldu undirtökunum áfram út fyrri hálfleikinn og leiddu með 2 mörkum í hálfleik en staðan var 16-14 þeim í vil. Það sama var upp á teningnum í upphafi síðari hálfleiks en eftir um 40 mínútna leik þá náðu Gróttumenn loksins undirtökunum í leiknum og komust yfir 20-21. Þeir héldu frumkvæðinu út leikinn og unnu að lokum eins marks sigur 28-29 en sigurinn var öruggari en tölurnar gefa til kynna þar sem Valsmenn skoruðu 2 síðustu mörkin undir lok leiksins. Með sigrinum eru Grótta komnir með 10 stig eins og Fram 2 á toppi deildinnar en Grótta hefur leikið einum leik meira, Fram 2 leikur gegn Víking í toppslag deildinnar síðar í dag. Sigurður Atli Ragnarsson og Logi Finnsson skoruðu báðir 7 mörk í dag fyrir Val 2. Antoine Óskar Pantano var markahæstur hjá Gróttu með 6 mörk. Jens Sigurðarson varði 18 skot í marki Vals 2 og Hannes Pétur Hauksson varði 10 skot í marki Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.