Ágúst Jóhannsson (Sævar Jónasson)
7.umferðin í Olís-deild karla heldur áfram í kvöld með þremur leikjum en fyrsti leikur kvöldsins fer fram í KA-heimilinu þegar KA tekur á móti Val. Dagur Árni Heimisson að snúa til baka á sinn gamla heimavöll en bæði lið unnu góða sigra í síðustu umferðinni. Valur vann Aftureldingu á meðan KA unnu Íslands- og bikarmeistara Fram í Úlfarsárdalnum. Rætt var um komandi leik í nýjasta þætti Handkastsins. ,,Ég held að það sé góð stemning í bæði hjá KA og hjá Þór. KA hefur byrjað tímabilið mjög vel og væru með heimavallarétt ef flautað yrði til leiksloka í deildinni akkúrat núna, það er hinsvegar nóg eftir,” sagði Stymmi klippari og hélt áfram: ,,Valsarar hafa verið laskaðir en áttu hörkuleik gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Ég held að Gústi Jó. sé ekkert hoppandi kátur að vera fá KA á þessum tímapunkti fyrir norðan.” Benedikt Grétarsson var gestur í þættinum og hann gerir ráð fyrir hörkuleik. ,,KA er með mjög spennandi lið en ég held að Valur vinni þennan leik, miðað við það sem ég sá af þeim í síðasta leik. Ég held að Valur geti alltaf dregið fram frammistöðu úr Bjögga (Björgvini Pál Gústavssyni) í svona leik.” ,,Þetta verður geggjaður handboltaleikur. Valur er ekkert að fara labba auðveldlega frá þessum leik,” sagði Benedikt Grétarsson að lokum. Leikir kvöldsins:
18:30 KA - Valur
19:00 Þór - HK
19:30 Haukar - Stjarnan

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.