Jóhann Reynir Gunnlaugsson (Kristinn Steinn Traustason)
Víkingar fengu HK í heimsókn í kvöld í Safamýri í Grill 66 deild karla. Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út október. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.
Víkingar réðu lögum og lofum allan leikinn og uppskáru sanngjarnan og öruggan sigur eins og reiknað var með.
Í hálfleik var staðan 19-13 og lokatölur urðu 34-26.
Hilmar Már Ingason átti frábæran leik í rammanum hjá Víking og varði 19 skot. Ísak Óli Eggertsson skoraði 8 mörk fyrir þá. Að öðru leyti dreifðist markaskorunin vel hjá þeim.
Hjá HK 2 var Örn Alexandersson með 14 mörk og hefur hann verið mjög iðinn við kolann í markaskorun að undanförnu. Egill Breki Pálsson varði 10 skot hjá þeim.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.