Óðinn Þór skoraði flottasta mark Evrópudeildarinnar í gær
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Óðinn Þór Ríkharðsson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Landsliðsmaðurinn, Óðinn Þór Ríkharðsson leikmaður Kadetten Schaffhausen í Sviss skoraði flottasta mark 2.umferðar Evrópudeildarinnar er hann skoraði fjórða mark liðsins gegn Partizan í Serbíu í gær.

Mark Óðins má sjá hér að neðan. Partizan hafði betur í leiknum 29-26.

Malte Celander leikmaður Savehof og liðsfélagi Birgis Steins Jónssonar skoraði næst flottasta mark leiksins í jafntefli liðsins gegn danska liðinu Fredericia.

Robert Nagy línumaður rúmenska liðsins, Minaur Baia Mare skoraði síðan þriðja flottasta mark 2.umferðarinnar af línunni í jafntefli liðsins gegn spænska liðinu Granollers en Baia Mare sló út Stjörnuna í vítakastkeppni í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top