Einkunnir Íslands: Skammarleg frammistaða
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Germany - Iceland (DANIEL KARMANN / dpa Picture-Alliance via AFP)

Ísland mætti Þýskalandi í æfingaleik í Nurnberg í Þýskalandi í kvöld. Um var að ræða fyrri leik þjóðanna af tveimur æfingaleikjum en þjóðirnar mætast á nýjan leik á sunnudaginn næstkomandi en þá í Munchen.

Þjóðverjar höfðu mikla yfirburði í leiknum og unnu að lokum ellefu marka sigur, 42-31 eftir að hafa verið 20-14 yfir í hálfleik.

Sjá einnig: Daprasta frammistaða undir stjórn Snorra Steins

Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Handkastsins úr leiknum.

Viktor Gísli Hallgrímsson - 2

Þessi frammistaða. Nær því að fá einn í einkunn í stað eitthvað hærra. Var eins og draugurinn Casper í markinu. 7% markvarsla.

Ágúst Elí Björgvinsson - 2

Ekki sú frammistaða sem Ágúst Elí vonaðist eftir. Margir kallað eftir því að Ágúst Elí fengi tækifærið. 11% markvarsla.

Orri Freyr Þorkelsson - 5

Tvö klikkuð víti - nýtti færin sín úr vinstra horninu.

Elvar Örn Jónsson - 4

Fann sig hvorki vörn né sókn. Þrjár marktilraunir og engin endaði í markinu.

Gísli Þorgeir Kristjánsson - 5

Alltof kaflaskiptur í þessum leik. Byrjaði illa, vann sig aðeins betur inn í leikinn í þeim seinni.

Ómar Ingi Magnússon - 4

Allt í lagi frammistaða. En við viljum fara sjá meira af Ómari í landsliðstreyjunni. Þrjú mörk og eitt klikkað víti. 

Óðinn Þór Ríkharðsson - 6

Þrjú mörk úr fjórum skotum. 

Elliði Snær Viðarsson - 4

Lala frammistaða. Í engum landsliðsklassa. Fékk tækifæri til að grípa fleiri sendingar sem mistókst. Enginn faktor í varnarleiknum.

Viggó Kristjánsson - 6
Gerði ekki mikið en það sem hann gerði var alls ekki slæmt.

Haukur Þrastarson - 4
Byrjaði af krafti í fyrri hálfleik en alltof margir tapaðir boltar í seinni hálfleik. Hauskúpu seinni hálfleikur.

Ýmir Örn Gíslason - 3 
Hvorki gott vörn né sókn.

Þorsteinn Leó Gunnarsson - (Spilaði of lítið til að fá einkunn)

Einar Þorsteinn Ólafsson - (Spilaði of lítið til að fá einkunn)

Arnar Freyr Arnarsson - (Spilaði of lítið til að fá einkunn)

Teitur Örn Einarsson - (Spilaði of lítið til að fá einkunn)

Viðmið:
10 - Óaðfinnanleg frammistaða

9 - Frábær frammistaða

8 - Mjög góður

7 - Góður

6 - Ágætur

5 - Þokkalegur

4 - Lélegur

3 - Mjög lélegur

2 - Arfa slakur

1 - Óboðleg frammistaða

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top