Dregið í 8-liða úrslit bikarsins í dag
Egill Bjarni Friðjónsson)

KA - Haukar (Egill Bjarni Friðjónsson)

Dregið verður í átta liða úrslit Powerade-bikars karla og kvenna í hádeginu í dag en dregið verður í Mínigarðinum. Er stefnt á það að drátturinn hefjist klukkan 12:15.

Leikir í 8-liða úrslitum karla fara fram 19.-20.desember á meðan leikirnir í 8-liða úrslitum kvenna fara fram dagana 3.-4. febrúar á næsta ári.

Final 4 vikan fer síðan fram vikuna 25. - 28.febrúar.

Þau átta lið sem verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit í karlaflokki eru:
Afturelding, FH, Fram, Haukar, ÍR og KA sem öll leika í Olís-deildinni auk Fjölnis sem leikur í Grill 66-deildinni.

Í kvennaflokki eru eftirfarandi lið í pottinum:
Fram, Haukar, ÍR, KA/Þór, Valur sem öll leika í Olís-deildinni ásamt FH, Gróttu og Víking sem leika í Grill66-deild kvenna. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top