Færeyingurinn ekkert meira með á þessu ári
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Jóhannes Björgvin (Sævar Jónasson)

Færeyingurinn í liði Stjörnunnar, Jóhannes Björgvin verður ekkert meira með Stjörnunni það sem eftir er af þessu ári. Þetta staðfesti Hrannar Guðmundsson þjálfari liðsins í samtali við Handkastið.

Jóhannes Björgvin lék fyrstu þrjá leiki Stjörnunnar í Olís-deildinni en meiddist síðan illa á æfingu eins og Handkastið hafði áður greint frá.

Meiðsli Jóhannesar voru hinsvegar töluvert alvarlegri en menn bjuggust við í fyrstu og er nú orðið ljóst að hann verður ekki meira með á þessu ári.

,,Þetta er aðeins alvarlegra en við bjuggumst við. Hann sleit liðband og tognaði á öðru liðbandi í ökkla auk þess að vera með beinbjúg hér og þar í ökklanum,” sagði Hrannar í samtali við Handkastið.

Jóhannes Björgvin hafði byrjað tímabilið vel með Stjörnunni og skoraði níu mörk úr níu skotum í fyrstu þremur leikjum liðsins á tímabilinu.

Stjarnan fer norður á Akureyri á föstudaginn og mætir þar KA í 9.umferð Olís-deildar karla.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top