
SC Magdeburg (HENDRIK SCHMIDT / dpa Picture-Alliance via AFP)
Sænski hornamaðurinn Isak Persson, sem varð Evrópumeistari með Magdeburg í vor, hefur samið við danska liðið GOG. Persson gengur í raðir GOG næsta sumar frá sænska félaginu HK Malmö. Eftir eins árs veru hjá Magdeburg gekk Persson í raðir Malmö í sumar en nú er ljóst að hann leikur í dönsku úrvalsdeildinni á næsta ári. Persson sem er fæddur árið 2000 lék tvö tímabil með Bergishcer áður en hann gekk í raðir Magdeburg. Þar áður lék hann með Lugi. Persson hefur leikið níu landsleiki fyrir Svíþjóð. Persson var meðal annars Evrópumeistari með Svíum á EM 2022 sem haldið var í Ungverjalandi og Slóvakíu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.