Nikolaj Rasmussen (Urbanandsport / NurPhoto via AFP)
Danski handknattleiksmaðurinn Nikolaj Markussen hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna eftir tímabilið. Nikolaj Markussen sem er 37 ára hefur undanfarin fjögur tímabil leikið með TTH Holstebro og hefur þar af leiðandi spilað undir stjórn Arnórs Atlasonar undanfarin tvö tímabil. MEð TTH Holstebro leikur einnig Íslendingurinn, Jóhannes Berg Andrason sem gekk í raðir félagsins frá FH í sumar. Nikolaj sem er 212 sentimetrar á hæð lék á ferlinum með félögum á borð við Atlético Madrid á Spáni og Veszprém í Ungverjalandi auk danskra félagsliða. Tímabilið 2013-2014 lék hann eitt tímabil í Katar. Hann var í sigurliði Dana á HM 2019 og EM 2012 og í silfurliðinu á EM 2013 á HM á Spáni. Hann á að baki tæplega 70 landsleiki fyrir Danmörku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.