Ungverskur landsliðsmaður yfirgefur Kiel
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Örvhenti hornamaður þýska liðsins, Kiel Bence Imre gengur í raðir Veszprém næsta sumar. Samningur Imre við Kiel rennur út næsta sumar og nú er ljóst að leikmaðurinn gangi í raðir ungversku meistarana í Veszprém og verði þar liðsfélagi Bjarka Más Elíssonar.

Samningur Gasper Marguc hægri hornamanns Veszprém rennur út næsta sumar og er Bence Imre ætlaður að fylla skarð Marguc.

Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti Gasper Marguc verið á leið í frönsku úrvalsdeildina.

Bence Imre er á sínu öðru ári hjá Kiel en hann lék áður með ungverska félaginu Ferencvarosi en hann lék meðal annars gegn Val í Evrópudeildinni fyrir tveimur tímabilum. Hann er fæddur árið 2002 og hefur leikið 33 landsleiki fyrir ungverska landsliðið.  

Hann hefur verið orðaður við Veszprém frá því í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top