Bjarki Már stórkostlegur í sigri á Kolstad og önnur úrslit í Meistaradeildinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarki Már var markahæstur í sigri á Kolstad (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)

Fjórir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld þar sem fimm Íslendingar voru í eldlínunni.

Óvæntustu úrslit kvöldsins voru án efa 25-24 sigur Eurofarm Pelister á Pick Szeged. Janus Daði Smárason var ekki með Pick Szeged í kvöld en hann er enn frá vegna meiðsla.

SC Magdeburg unnu fimm marka sigur á HC Zagreb á heimaveilli 27-22. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 4 mörk, Ómar Ingi Magnússon skoraði 3 mörk en Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað.

Benedikt Gunnar Óskarsson og félagar í Kolstad steinlágu fyrir Bjarka Má Elíssyni og samherjum í Veszprém í Kolstad Arena 29-43. Benedikt Gunnar skoraði 3 mörk fyrir Kolstad en Bjarki Már fór mikinn og var markahæstur á vellinum með 8 mörk fyrir Veszprém.

Þá unnu PSG þriggja marka sigur á GOG í heimsókn þeirra til danska liðsins, 28-31.

Úrslit kvöldsins
A riðill:
Kolstad - Veszprém 29-43

B riðill:
GOG - PSG 28-31
SC Magdeburg - HC Zagreb 27-22
Eurofarm Pelister - Pick Szeged 25-24

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top