Er FH með besta markvarðarpar deildarinnar?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Daníel Freyr Andrésson (Sævar Jónasson)

10.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld þegar FH og KA mætast í Kaplakrika. Leikurinn hefst klukkan 19:00.

FH er í 6.sæti deildarinnar með níu stig en liðið tapaði gegn Aftureldingu í síðustu umferð. KA er hinsvegar í 3.sæti deildarinnar með 12 stig og geta jafnað Hauka og Aftureldingu að stigum með sigri í kvöld. 

FH töpuðu gegn Aftureldingu í síðustu umferð 25-23 í Mosfellsbænum en þar var Ómari Darri Sigurgeirsson leikmaður fæddur árið 2008 sprækastur FH-inga í sóknarleiknum og þá vakti innkoma Daníels Freys í markinu verðskuldaða athygli en hann varði sex skot af þeim tíu sem hann fékk á sig og hélt FH-ingum inn í leiknum með frábærum markvörslum.

Farið var yfir frammistöðu Daníels Freys og Ómars Darra í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans á mánudagskvöldið.

Þar spurði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar gestina hvort FH væri með besta markvarðarparið í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top