Færeyingurinn sneri til baka í liði Fram
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dánjal Ragnarsson (Sævar Jónasson)

Færeyingurinn, Dánjal Ragnarsson sneri aftur á völlinn eftir meiðsli undanfarnar vikur er Fram fékk svissneska liðið, HC Kriens í heimsókn í 4.umferð Evrópudeildarinnar á þriðjudagskvöldið.

Dánjal lét til sín taka í leiknum og skoraði alls fimm mörk í fjögurra marka tapi liðsins, 31-35.

Dánjal varð fyrir því óláni að togna á nára í bikarleik Fram gegn Grill66-deildarliði Víkings í byrjun október en Fram unnu leikinn í framlengingu.

Nú virðist Færeyingurinn, hinsvegar vera búinn að ná sér af þeim meiðslum og ætti því að geta spilað með Fram í kvöld á heimavelli gegn Stjörnunni í 11.umferð Olís-deildar karla.

Fram fer síðan til Portúgals og leikur þar gegn Porto í 5.umferð Evrópudeildarinnar næstkomandi þriðjudag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top