Baldur Fritz Bjarnason (Egill Bjarni Friðjónsson)
Baldur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn Þór í botnbaráttuslag í lokaleik 12.umferðar Olís-deildar karla. Um var að ræða fyrsta sigur ÍR í deildinni en liðið situr áfram á botni deildarinnar. Baldur Fritz og Jökull Blöndal voru markahæstu leikmenn ÍR í leiknum með átta mörk hvor en ÍR vann leikinn 34-31. Hér að neðan er hægt sjá viðtal við Baldur eftir sigurinn í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.