Elís Þór eftirsóttur erlendis frá
IHF)

Eina hægri skytta ÍBV, Elís Þór Aðalsteinsson er eftirsóttur af fjölmörgum liðum erlendis frá. Þetta herma öruggar heimildir Handkastsins.

Elís Þór sem fór mikinn í upphafi tímabils með ÍBV í Olís-deild karla var markahæsti leikmaður deildarinnar áður en hann varð fyrir því óláni að ristarbrotna á æfingu með U20 ára landsliði Íslands í október mánuði. Gert er ráð fyrir því að Elís Þór snúi aftur á völlinn eftir áramót þegar Olís-deildin fer af stað á nýjan leik í byrjun febrúar eftir EM.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins er Elís Þór á radaranum hjá fjölmörgum félögum í Evrópu meðal annars liðum í þýsku B-deildinni og í Danmörku. 

Elís Þór sem er fæddur árið 2007 fékk lyklana af hægri skyttu stöðu ÍBV í sumar eftir að Portúgalinn, Daniel Vieira yfirgaf félagið. Hann þakkaði traustið og var einn besti leikmaður Olís-deildarinnar áður en hann meiddist.

Það verður fróðlegt að sjá hvort Elís Þór taki það skref næsta sumar að fara út í atvinnumennskuna eða bíði rólegur og haldi trausti við uppeldisfélag sitt.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top