Harri Halldórsson (Raggi Óla)
Afturelding tók á móti HK í 13.umferð Olís deildar karla í Mosfellsbæ í kvöld. Fyrr um daginn hafði ljósleiðari verið grafinn í sundur fyrir utan Varmá og því var internetlaust í öllu húsinu svo ekki náðist að sýna frá leiknum í Handboltapassanum. Ég get þó upplýst lesendur um það að HK byrjaði leikinn betur en Afturelding en heimamenn náðu þó vopnum sínum undir lok fyrri hálfleiks og leiddu 18-17 í hálfleik. Síðari hálfleikur var algjör eign Aftureldingar sem rúllaði yfir HK og urðu lokatölur 41-33. Oscar Lykke var markahæstur hjá Aftureldingu með 10 mörk en hjá HK voru þeir Sigurður Jeffersson og Jóhann Birgir Ingvarsson markahæstir með 8 mörk. Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.