ÍBV sótti sigur í Garðabæ
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stjarnan tók á móti ÍBV í Heklu höllinni í kvöld. Fyrir leik var Stjarnan í sjöunda sæti með 10 stig og ÍBV í sjötta sæti með 13 stig.

Jafnt var á milli liðanna fyrsta korter leiksins en eftir það náði ÍBV yfirhöndinni í leiknum. Forskot ÍBV jókst jafnt og þétt fram að leikslokum, ÍBV endaði með 7 marka sigur, lokatölur 22-29.

Dagur Arnarsson átti góðan leik, var með góða skotnýtingu eða 5 mörk úr 6 skotum ásamt þremur stoðsendingum. Markahæstir í leiknum voru þeir Daníel Þór Ingason og Sveinn José Rivera með 6 mörk hvor. Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson atkvæðamestur með 5 mörk.

Fín markvarsla var í leiknum hjá báðum liðum. Báðir markmenn beggja liða áttu þátt í leiknum, Sigurður Dan Óskarsson hjá Stjörnunni og Morgan Goði Garner hjá ÍBV áttu sérstaklega góða markvörslu og voru báðir með yfir 50% markvörslu.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top