Porto neitar beiðni Þorsteins Leós að koma til Íslands í meðhöndlun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þorsteinn Leó Gunnarsson (Hugo Segato / DPPI via AFP)

Rætt var um stöðuna á strákunum okkar í nýjasta þætti Handkastsins í morgun en nú er ekki nema fjórar vikur í fyrsta leik Íslands á EM í janúar þar sem fyrsti leikur landsliðsins verður gegn Ítalíu, föstudaginn 16.janúar.

Mesta spurningarmerkið fyrir Evrópumótið er þátttaka Þorsteins Leós Gunnarssonar leikmanns Porto sem er að glíma við nárameiðsli. Afar ólíklegt þykir að hann geti tekið þátt í mótinu en Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnir 18 manna landsliðshóp sinn í næstu viku.

,,Það er mjög erfitt að flýta nárameiðslum en maður veit aldrei. Þetta er aldrei búið fyrr en þetta er búið en það verður að segjast eins og er að það verður ekki mjög líklegt að hann verði með á EM. Sem er hrikalegt fyrir okkur og hann en svona er bransinn og við verðum að vona það besta,” sagði Ásgeir Jónsson sem var einn af gestum Handkastsins í morgun.

Stymmi klippari stýrði þættinum að þessu sinni milli þess sem hann klippir kúnna sína fyrir jólin. Í rakarastólnum heyrir hann ýmislegt meðal annars þetta:

,,Það hvíslaði að mér maður í rakarastólnum í gær að Þorsteinn Leó væri að liggja í stjórnarmönnum Porto um að fá að koma til Íslands í meðhöndlun en þeir voru ekki að samþykkja það. Manni grunar að ef Porto fengi að ráða þá yrði hann ekki sendur í þetta mót því Þorsteinn Leó er einn af stóru bitunum þeirra og þeir eru að hugsa um sína fjárfestingu. Hann liggur í þeim og vill koma heim til Íslands í meðhöndlun en þeir eru ekki að hleypa honum til Íslands fyrr en deildin fer í jólafrí,” sagði Stymmi klippari og bætti við að Þorsteinn Leó væri að gera allt til að vera klár fyrir janúar en tíminn myndi leiða það í ljóst hvort það myndi duga. 

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top