GróttaGrótta (Eyjólfur Garðarsson)
Það var háspenna lífshætta á Seltjarnarnesinu í kvöld þegar toppliðin í Grill66-deild karla Grótta og Víkingur mættust en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í kvöld. Víkingur vann fyrri leik liðanna fyrr á tímabilinu. Víkingur var með forystuna nær allan leikinn en Grótta sýndi ótrúlega seiglu og þrautseigju enn og aftur á tímabilinu. Víkingur komst mest fimm mörkum yfir 22-17. Grótta jafnaði metin í stöðunni 29-29 og komst yfir í fyrsta og eina skiptið í leiknum í stöðunni 30-29, þegar rúmlega tvær mínútur lifðu leiks. Halldór Ingi Óskarsson skoraði jöfnunarmark Víkings þegar rúmlega 90 sekúndur voru eftir af leiknum en það mark verður að teljast kolólöglegt þar sem Halldór Ingi nýtir sér markmannsteigin áður en hann fær boltann og skorar. Bæði lið fengu tækifæri til að skora sigurmarkið en mistókst það. Grótta vann boltann af Víkingum nokkrum sekúndum fyrir leikslok og brunaði Bessi Teitsson upp í hraðarupphlaup og skoraði en leiktíminn var liðinn. Þessar ótrúlegu lokamínútur er hægt að sjá hér að neðan: Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 15% afslátt af öllum boozt á Hressbarnum og 15% afslátt af öllum staðgreiddum kortum út desember. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.