Henny Reistad best og markahæst
JOHN THYS / AFP)

Noregur tryggði sér heimsmeistaratitilinn með þriggja marka sigri á Þýskalandi 23-20 í úrslitaleik keppninnar sem fram fór í Rotterdam í Hollandi fyrr í dag. Eftir úrslitaleikinn var tilkynnt um valið á besta leikmanni mótsins og leikmönnum í úrvalsliðinu.

Henny Reistad frá Noregi, besta handboltakona ársins 2023 og 2024 hjá IHF, var valin verðmætasti leikmaður keppninnar í annað sinn í röð þá var Henny Reistad einnig markadrottning mótsins.

Að auki var úrvalslið mótsins tilkynnt en fimm þjóðir áttu fulltrúa í liðinu. Markvörður Noregs, Katrine Lunde, var valin í úrvalslið HM í annað sinn en hún var einnig valin árið 2017, en hún var að spila sinn síðasta landsleik á ferlinum. Hún hafði gefið það út fyrir mótið að þetta yrði hennar síðasta verkefni með norska landsliðinu.

Þýskaland átti tvo leikmenn í úrvalsliðinu eða vinstri skyttuna Emily Vogel og vinstri hornamanninn Antje Döll. Franski línumaðurinn, Sarah Bouktit var valin besti línumaður keppninnar og hægri skyttan, Dione Housheer frá Hollandi var einnig í úrvalsliðinu.

Það er venja á stórmótum að verðmætasti leikmaður mótsins er ekki valin í úrvalslið mótsins.

Að lokum var Brassinn, Bruna de Paula Almeida í úrvalsliðinu sem leikstjórnandi en hún skoraði alls 33 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top