Stjarnan sendir Ungverjann heim
Sævar Jónasson)

Ungverjinn, Rea Barnabás sem gekk í raðir Stjörnunnar í sumar á láni frá ungverska stórliðinu, Pick Szeged hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Þetta tilkynnti Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu.

,,Stjarnan og Rea hafa komist að samkomulagi um að slíta samningi hans við félagið, bæði sem leikmaður og aðstoðarþjálfari yngri flokka. Rea gekk til liðs við Stjörnuna fyrir núverandi tímabil á láni frá ungverska stórliðinu Pick Szeged. Stjarnan þakka Barnabás Rea innilega fyrir framlag hans og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni.

Rea skoraði 14 mörk í 12 leikjum fyrir Stjörnuna á tímabilinu en hann meiddist á nára í leik gegn FH á tímabilinu og var frá vegna þeirra meiðsla í nokkrar vikur.

Gengi Stjörnunnar hefur ekki verið eins og búist var við en liðið er með 10 stig í 8. sæti deildarinnar að loknum fimmtán leikjum, með jafn mörg stig og HK sem er í 9.sæti deildarinnar. Stjarnan hefur tapað fjórum síðustu leikjum sínum í deildinni og einungis unnið einn af síðustu níu leikjum sínum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top