Verkefni vetrarins var að sinna erfiðum veikindum í fjölskyldunni
HK handbolti

Kvennalið HK er komið aftur upp í deild þeirra bestu eftir sigur á Grill66-deildinni. Hilmar Guðlaugsson hefur stýrt sínum síðasta leik sem þjálfari kvennaliðs HK en við búinu tekur ungur og óreyndur þjálfari, Dagur Snær Steingrímsson sem stekkur í djúpu laugina.

Kvennalið HK verður fyrsta starf Dags Snæs sem þjálfara meistaraflokks en hann hefur verið aðstoðarþjálfari kvennaliðs Vals undanfarin ár og stýrt yngri flokkum Vals. Þá var hann einnig aðstoðarþjálfari kvennaliðs Gróttu á sínum tíma þegar Alfreð Örn Finnsson stýrði liðinu.

Hafði fengið einhverjar fyrirspurnir

„Mér líst bara mjög vel á þetta verkefni,“ sagði Dagur Snær í samtali við Handkastið rólegur en ákveðinn. „Þetta er spennandi hópur og það er krefjandi verkefni framundan.“

En hvernig kom það til að hann tók við liði HK? Kom símtalið frá stjórnarmönnum HK honum á óvart?

„Já og nei,“ sagði hann og hélt áfram. „Ég var búinn að fá einhverjar fyrirspurnir fyrir næsta tímabil, en um leið og þetta kom upp var alveg ljóst hvert ég vildi fara. Á sama tíma, eftir að hafa ekki þjálfað neitt í ár, var ég ekkert endilega að búast við þessu skrefi akkúrat núna.“

Dagur Snær tók sér frí frá þjálfun á þessu tímabili. Hann segir að sú ákvörðun um að taka sér hlé frá þjálfun var ekki tekin af léttúð. Veturinn fór í annað og mikilvægara.

„Það var alltaf planið að koma mér aftur inn á gólf sem fyrst,“ útskýrir hann. „En verkefni vetrarins var að sinna erfiðum veikindum í fjölskyldunni. Núna horfir það til betri vegar og það er bara gríðarleg eftirvænting hjá mér að komast aftur á fullt í boltanum.“

„Ég þekki hópinn ágætlega. Ég hef þjálfað oft gegn þessum yngri kjarna undanfarin ár, bæði í Grillinu og yngri flokkunum. Eldri leikmennirnir eru líka þekktar stærðir sem hafa fylgt HK lengi.“

Góður tímapunktur að fara í 10 liða efstu deild

„Stefnan er sett hátt hjá HK. Það er mikill efniviður til staðar og enn meiri á leiðinni. Fyrstu skrefin eru að festa liðið í sessi sem Olísdeildarfélag til lengri tíma og halda áfram þeirri framþróun sem hefur verið síðustu ár.“

Eitt af stóru umræðuefnum handboltans þessa dagana er fyrirkomulag efstu deildar kvenna. Þar hefur Dagur skýra sýn.

„Ég held að það sé gott fyrir íslenskan kvennahandbolta að við eignumst fleiri lið sem geta keppt á hæsta leveli og búum til meiri breidd,“ segir hann. „Mér finnst þetta góður tímapunktur til að fara í 10 liða Olísdeild og jafnvel þróa Grillið áfram – jafnvel með 2. deild. En ég er ekki hrifinn af því að fara í eina deild.“

Þegar kemur að leikmannahópnum er jafnvægi lykilorðið.

„Þetta verður blanda,“ segir Dagur. „Við erum með mjög góðan kjarna sem verður áfram grunnurinn, en við munum styrkja hópinn fyrir átökin í Olísdeildinni í haust. Það verða allir leikmenn áfram og það verða einhverjar viðbætur. En það verða ekki miklar breytingar milli ára," sagði Dagur Snær að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top