Peter Pucelj hefur ákveðið að láta af störfum sem aðalþjálfari Bergsøy Handball eftir tvö ár í starfi. Hann tilkynnti stjórn félagsins um ákvörðun sína á dögunum. Pucelj tók við liðinu fyrir tveimur tímabilum og hefur síðan þá stýrt Bergsøy í gegnum afar árangursríkt tímabil. Undir hans stjórn hefur liðið tekið stór skref á íþróttasviðinu og verið í harðri baráttu um sæti í efstu deild norsks handbolta. Liðið tryggði sér á dögunum sæti í Rema 1000-deildinni eftir sannfærandi gengi og stórsigur í lykilleik, sem markar sögulegan áfanga fyrir félagið. Handkastið fjallaði um árangur liðsins undir stjórn Pucelj og líkti því við öskubuskuævintýri. Stjórn Bergsøy þakkar Pucelj fyrir framlag hans og fagmennsku á meðan hann var við stjórnvölinn. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að hann hafi lagt mikið á sig fyrir liðið og haft jákvæð áhrif á bæði leikmenn og starfsemi þess. Leitin að nýjum aðalþjálfara er þegar hafin og mun félagið veita frekari upplýsingar þegar ráðning liggur fyrir. Tveir íslenskir þjálfarar hafa þjálfað hjá Bergsøy síðustu ár, fyrst Einar Jónsson og síðan Lárus Gunnarsson. Það verður athyglisvert að sjá hvort norska félagið leiti í viskubrunn Íslendings til að stýra liðinu í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.