Víkingur tryggði sér sæti í Olís-deild karla á nýjan leik eftir tveggja ára veru í Grill66-deildinni en það er orðið töluvert síðan liðið hélt sæti sínu í deild þeirra bestu og það hefur verið þeirra hlutskipti að falla niður í Grill66-deildina í hvert skipti sem liðið leikur í Olís-deildinni. Víkingar virðast hinsvegar vera stórhuga með Aðalstein Eyjólfsson í brúnni á leið í sitt þriðja tímabil sem þjálfari liðsins en samkvæmt heimildum Handkastsins hefur félagið áhuga á að fá annað hvort Hákon Daða Styrmisson leikmann ÍBV eða Igor Kopishinsky sem hefur leikið með Aftureldingu undanfarin ár. Hákon Daði gekk í raðir ÍBV í janúar og gerði samning út tímabilið eftir að hafa leikið í Þýskalandi undanfarin ár. Samningi Igor Kopishinsky við Aftureldingu var sagt upp á dögunum og er hann því samningslaus fyrir næsta tímabil. Það verður þó að teljast ansi ólíklegt að Víkingur sæki sér báða þessa leikmenn þar sem báðir leika þér í stöðu vinstri hornamanns en það er hinsvegar ljóst að Víkingur myndi vilja fá annan hvorn leikmanninn. Hákon Daði flutti heim til Íslands vegna fjölskylduaðstæðna en hann eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum. Hann er búsettur á höfuðborgarsvæðinu og ólíklegt þykir að hann verði áfram í herbúðum ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.