
Sport Bild greinir frá því í dag að þrátt fyrir að HØJ hafi þegar gert samning við danska landsliðsmanninn, Lasse Andersson fyrir komandi tímabil vonist Füchse Berlin til að finna lausn sem geti haldið nýkrýndum bikarmeistara hjá félaginu. Füchse Berlin hefur greinilega ekki alveg gefist upp á voninni um að halda Lasse Andersson samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild. Lasse Andersson var um helgina valinn MVP á bikarhelginni í Köln, þar sem Füchse vann bikarmeistaratitilinn eftir sigur á Bergischer í úrslitaleiknum. Andersson skoraði 21 mark og lagði upp fimm í leikjunum tveimur. Samkvæmt Sport Bild er Füchse Berlin enn að vinna í því að finna lausn sem gæti haldið leikmanninum lengur hjá félaginu. Handkastið greindi frá því á dögunum að nýliðar HØJ í dönsku úrvalsdeildinni berjist fyrir lífi sínu í deildinni en liðið fer í umspil um laust sæti í deildinni á næstu dögum. Það verður að teljast ansi undarlegt ef einn af bestu leikmönnum Bundesligunnar muni leika í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð. STAÐA HØJ GRAFALVARLEG – HVAÐ GERIR GREEN? „Ég kom til Berlínar fyrir sex árum til að vinna þýska titla. Núna hef ég unnið þrjá: Ofurbikarinn, deildina og bikarinn. Það þýðir mjög, mjög mikið fyrir mig,“ segir Lasse Andersson við Sport Bild eftir bikarúrslitaleikinn um helgina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.