Bandarískur landsliðsmaður í Hauka
Haukar topphandbolti

Það hefur legið fyrir í langan tíma að bandaríski landsliðsmaðurinn, Sigurður Jefferson Guarino væri að ganga í raðir bikarmeistara Hauka. Nú hefur félagið loks tilkynnt skiptin en Sigurður gengur í raðir Hauka frá HK þar sem hann er uppalinn og hefur verið lykilmaður undanfarin ár.

Sigurður hefur undanfarin ár verið hluti af bandaríska landsliðinu og lék hann sína fyrstu landsleiki fyrir bandaríska landsliðið fyrir ári síðan og aftur núna í upphafi árs.

Sigurður verður 25 ára í desember hefur undanfarin ár verið einn besti línumaður Olísdeildarinnar og á tímabilinu í ár skoraði hann 111 mörk.

,,Það er ánægjuefni að jafn sterkur leikmaður og Sigurður velji það að koma til Hauka til að taka næstu skref sín á ferlinum og mun koma hans hjálpa félaginu í þeim markmiðum um að keppast um alla þá titla sem í boði eru," segir í tilkynningunni frá Haukum.

Um félagsskiptin hafði Sigurður þetta að segja:

„Ég er með skýr markmið sem falla vel að hugmyndafræði og stefnu Hauka. Ég er spenntur fyrir því að takast á við nýjar áskoranir og hlakka til að vera hluti af liðinu og berjast með þeim næsta vetur.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top