Bjóða upp á ferð til Kaíró að sjá íslenska landsliðið
Johan Nilsson/TT /AFP

Kleopatra Tours hefur sett af stað sölu á einstakri handboltaferð til Kairó þar sem farið verður á tvo vináttulandsleiki Íslands gegn Egyptalandi í maí.

,,Við gistum á hinu glæsilega 5 stjörnu Giza Palace Hotel nálægt handboltaleikvanginum. Í göngufæri frá hótelinu eru veitingastaðir, kaffihús og verslunarmiðstöðvar. Í boði verða valfrjálsar aukaferðir að skoða píramídana, sfinxinn og hið nýopnaða Great Egyptian Museum ásamt gömlu Kaíró og Salah El Din borgarvirkið frá tímum krossfarana," segir í auglýsingu Kleopatra Tours.

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands tilkynnti í vikunni leikmannahóp Íslands sem leikur vináttulandsleikina tvo gegn Egyptalandi 13. og 15. maí.

Hópurinn gegn Egyptalandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top