
Oddaleikurinn í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í Valsheimilinu í kvöld þegar Valur tekur á móti FH í fimmta leik liðanna í úrslitaeinvíginu. Leikurinn hefst klukkan 19:30 en löngu er orðið uppselt á leikinn en hann verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Allir sigrarnir í einvíginu hingað til hafa komið á heimavelli og standa því Valsmenn vel að vígi með heimavallaréttinn eftir að hafa unnið Olís-deildina. FH endaði í 2.sæti Olís-deildarinnar. Hér að neðan munu nokkrir aðilar spreyta sig að spá í spilin fyrir leikinn. Einar Ingi Hrafnsson - Spekingur: Valur 25 - 29 FH Össur Haraldsson - Leikmaður Hauka: Valur 33 - 31 FH Jóhann Gunnar Einarsson - Fyrrum handboltakempa: Valur 31 - 28 FH Gunnar Magnússon - Þjálfari bikarmeistara Hauka: Valur 33 - 34 FH Oddur Gretarsson - Leikmaður Þórs: Valur 32 - 30 FH Einar Jónsson - Þjálfari Íslandsmeistara Fram: Valur 32 - 31 FH Mikael Nikulásson - Handboltaspekingur: Valur 28 - 30 FH
Svakalegur leikur framundan, fullt hús og allt undir. Þegar þessi lið og þetta einvígi er lagt saman, þá finnst manni styttra í svör FH við leik Vals, heldur en að Valur nái að stoppa helstu vopn FH-inga, sem eru Ómar Darri, Jón Bjarni og Garðar. Þegar Ingvar Dagur og FH vörnin smellur þá eru valsarar í miklum vandræðum í uppstiltum sóknarleik, og þá þurfa þeir að treysta á hraðann og seinni bylgjuna sína. En leikur 5 reynir oft á taugarnar og þreytustigið, og mér finnst þreytan aðeins vera að ná Bjarna Selvind og Gunnari Róberts hjá Val meira enn leikmönnum FH. Þannig ég sé ekki Val ná sínum hraða leik upp til að máta FH-inga í þessum leik 5, þar sem Ómar Darri mun halda áfram að vera stórkostlegur og Jón Bjarni líklegur til að toppa sig í einvíginu í leik 5. Eina sem kristalkúlan segir mér hvað varðar Valssigur, er að ef besti markmaður íslandssögunnar, Björgvin Páll dettur í gírinn þá gæti þetta snúist í höndunum á FH. Áfram handboltinn.
Ætli þetta verði ekki einhver naglbítur, bæði lið eflaust orðin mjög þreytt og þetta getur ráðist á smáatriðum. Liðin hafa bara unnið á heimavöllum sínum hingað til svo er ekki sniðugast að segja að það muni ekkert breytast og Valsarar taki þetta í hörkuleik
Valur verður Íslandsmeistari. Oddaleikur um Íslandsmeisrartitilinn er eitthvað allt annað dæmi, hann hefur brotið sterkustu menn og gert ólíklegustu menn að hetjum. Kaldur haus og reynsla skiptir mestu máli þarna og þar hafa valsarar vinninginn að mínu mati.
Það verður bara ein framlenging og FH vinnur þetta 34-33. Danni með tvöfalda markvörslu í lokin og tryggir FH titilinn.
Mér finnst munurinn á þessum liðum afskaplega lítil og því nánast ómögulegt að setja pening á annað liðið. Bæði lið með frábæra unga leikmenn í bland við eldri reyndari menn. Ég spái því að heimaleikjarétturinn hjálpi Völsurum í kvöld og vinna þeir tveggja marka sigur 32-30 í frábærum úrslitaleik.
Valur vinnur 32-31 í framlengdum leik. Á von á því að þetta verði svipað og síðasti leikur þessara liða. Jafnt og spennandi frá byrjun til enda. Gunnar Róbertsson mun skora sigurmark Vals á síðustu sekúndunum.
Það á allt að vera með Valsmönnum á heimavelli í svona leik en FH hefur eitt stykki Aron Pálmarsson á bekknum sem kann ekkert annað en að vinna og siglir þessum titli heim fyrir guttana sína.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.