Fjölgað í úrvalsdeild kvenna og breytingar á úrslitakeppninni
Eyjólfur Garðarsson

69. ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ fór fram í Virkinu í Safamýri í dag, þar sem fjöldi mála var tekinn til afgreiðslu.

    Helst bar til tíðinda að ályktun stjórnar HSÍ um breytingar á fyrirkomulagi úrslitakeppni var samþykkt. Breytingin felur í sér að í 8-liða úrslitum verður leikið í tveimur fjögurra liða riðlum, fyrirkomulag sem þekkist meðal annars í Danmörku.

    Einnig var ályktun frá Gróttu samþykkt um fjölgun liða í úrvalsdeild kvenna. Samkvæmt henni verður liðunum fjölgað úr átta liðum í tíu liða úrvalsdeild. Af 49 atkvæðum á þinginu voru sex sem kusu gegn þessari breytingu.

    Þar með ljóst að eftirfarandi lið eiga sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð:

    Valur, ÍBV, Haukar, Fram, ÍR, KA/Þór, Stjarnan, HK, Grótta, Víkingur.

    Liðin sem leika í Grill66-deild kvenna verða:

    Selfoss, FH, Afturelding, Fjölnir auka venslaliða.

    Þingskjal 6 sem fól í sér bráðabirgðaákvæði um heimild til að breyta mótafyrirkomulaginu strax í haus. Var það samþykkt með meiri hluta atkvæða. Breytingarnar taka því strax gildi frá og með næsta tímabili.

    Ályktun Stjörnunnar um fækkun á leikskýrslu í meistaraflokki kvenna úr 16 leikmönnum í 14 leikmenn var felld. Það verður því áfram heimilt að vera með 16 leikmenn á leikskýrslu bæði í karla og kvennaflokki en því var breytt í heimsfaraldrinum, Covid-19 á sínum tíma og hefur haldist óbreytt síðan þá.

    Nýjustu fréttir

    HAFA SAMBAND

    Handkastið.net

    Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

    Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


    handkastid@handkastid.net

    Scroll to Top