Afturelding á loka metrunum að ráða nýjan þjálfara
Raggi Óla

Sigurður Straumfjörð Pálsson formaður meistaraflokks ráðs karla hjá Aftureldingu segir að stjórn handknattleiksdeildarinnar telur sig vera á allra síðustu metrunum í því að ráða nýjan þjálfara fyrir karlalið félagsins.

Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum eftir tímabilið eftir eitt ár við stjórnvölinn en Stefán var aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar í þrjú ár áður en hann tók við sem aðalþjálfari liðsins.

,,Ég er ekki á þeim stað að henda fram einhverjum nöfnum," sagði Sigurður Straumfjörð í samtali við Handkastið.

En hefur ráðningarferlið tekið lengri tíma en búist var við?

,,Við höfum vilja vanda til verka og gefa okkur góðan tíma í þetta. Fyrsta sem við gerum er að tryggja að rammaverk okkar sé eins og við viljum hafa það. Þú vilt að handknattleiksdeild sé með sín markmið og stefnu og síðan eru þjálfarar og leikmenn sem koma og fara, en þú vilt að grunnurinn af húsinu sé alltaf til staðar. Við höfum verið að taka stór skref í því að byggja upp liðið á okkar heimamönnum og sótt eins lítið og hægt er í aðkomumenn. Síðan viltu að stefnumótunin sé í ákveðnum takti."

,,Þannig fyrsta sem við þurftum að ræða hér innanbúðar var, hvernig þjálfara viljum við? Hvernig viljum við að samsetningin af þjálfarateyminu sé. Við erum ekki bara með meistaraflokk, við erum líka með vensla lið og síðan tenging í 3.flokk. Deildin hér heima er uppeldisdeild og meðalaldurinn í þessum afreksliðum er alltaf að verða yngri og yngri og afreksstarfið skiptir því gríðarlega miklu máli. Fyrsta skrefið var að ákveða hvað við viljum og síðan bjuggum við til lista yfir þjálfara sem við vildum og við erum ennþá á þeim lista og erum ekkert komnir út fyrir hann. Þetta snýst líka um það, viltu gera hlutina hratt eða gera þá aðeins hægara og gera þá vel. Í því samhengi, þá er ansi margir mánuðir í fyrsta leik og meistaraflokkurinn okkar í dag er að æfa undir stjórn Daníels Bergs og ég get ekki sagt að ég hafi miklar áhyggjur af því að hjartað sé ekki að slá hjá okkar leikmönnum þrátt fyrir að við séum ekki búnir að ráða þjálfara.”

Talandi um Daníel Berg Grétarsson, verður hann áfram aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu?

,,Það er ekkert búið að ákveða neitt hvað það varðar. Daníel Berg hefur unnið gríðarlega gott starf hjá okkur í vetur og er að mínu mati einn færasti þjálfari í þessum yngri og afreksstarfi. Það er mikill fengur hvort sem það sé Afturelding eða eitthvað annað félag að hafa hann í sínum herbúðum.” 

Nafn Ólafs Stefánssonar kom til umræðu í vikunni sem næsti þjálfari Aftureldingar. Sigurður var spurður út í þann orðróm.

,,Við erum ekki í viðræðum við Ólaf Stefánsson en Óli Stef yrði frábær þjálfari fyrir hvaða lið sem er í þessari deild með alla sína reynslu. Hann er ekki á leiðinni í Mosó.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top