Birgir Már til GC Amicitia Zürich

FH tilkynnti í morgun að Birgir Már Birgisson hefði samið við GC Amicitia Züuroch til næstu tveggja ára.

Birgir Már hefur verið allgjör lykilleikmaður í FH liðinu undanfarin ár og allt frá því hann gekk til liðs við félagið árið 2018. Birgir varð einu sinni bikarmeistari, tvisvar sinnum deildarmeistari og einu sinni Íslandsmeistari með FH. Þá var Birgir á 35 manna hóp íslenska landsliðsins fyrir HM 2025.

GC Amicitia Züurich lenti í 8. sæti svissnesku deildarinnar á tímabilinu sem leið og mætti Kadetten Schaffhausen í 8-liða úrslitum þar sem liðið tapaði því einvígi 3-0. Þá vann liðið svissneska bikarinn 2022 þegar liðið vann Pfadi Winterthur 30-28 eftir framlengdan leik.

Handkastið óskar Birgi til hamingju með skiptin og það verður spennandi að fylgjast með Birgi úti.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top