Arnar Freyr kynntur nýr leikmaður Flensburg í miðjum landsleik
Flensburg

Landsliðsmaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson hefur gengið í raðir þýska stórliðsins SG Flensburg-Handewitt. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.

Arnar Freyr gengur í raðir Flensburg frá MT Melsungen en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

,,Að færa sig yfir til SG Flensburg-Handewitt er stórt skref fyrir mig og eitthvað sem ég er mjög stoltur af. Ég hef heyrt svo margt gott um félagið, aðdáendurna og andrúmsloftið í kringum liðið. Ég get ekki beðið eftir að byrja og hjálpa liðinu að ná árangri," sagði Arnar Freyr við heimasíðu Flensburg í tilkynningunni.

Holger Glandorf framkvæmdastjóri Flensburg hafði þetta að segja um komu Arnars Freys:

„Það var mikilvægt fyrir okkur að semja við lykilmann sem hefur þegar reynslu af Bundesligunni. Álagið allt tímabilið er gríðarlegt og við vildum skapa tækifæri til að gefa Blagontinsek og Emil Bergholt nauðsynlega hvíld án þess að fórna gæðum. Arnar hefur nákvæmlega þá persónuleika sem við vorum að leita að, líkamlega sterkur, reynslumikill og með frábæran liðsanda," sagði Holger Glandorf en Emil Bergholt gengur í raðir félagsins frá Skjern í sumar.

Johannes Golla er á leið frá Flensburg til MT Melsungen og þá er Lukas Jorgensen að ganga í raðir Veszprém.

Viggó Kristjánsson verður liðsfélagi Arnars Freys hjá Flensburg frá og með sumrinu 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top