
Í annað sinn á skömmum tíma hefur kvenleikmaður stigið fram og gagnrýnt Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) fyrir kynjamisrétti í birtingu efnis á samfélagsmiðlum sambandsins. Í lok mars vakti Ásthildur Bertha Bjarkadóttir, leikmaður ÍR, athygli á málinu með færslu á TikTok eftir landsliðsverkefni kvennalandsliðsins. Þar sýndi hún fram á verulegan mun á kynningu vináttulandsleikja karlalandsliðsins annars vegar og leikja kvennalandsliðs Íslands í undankeppni Evrópumóts hins vegar. SKÝTUR FÖSTUM SKOTUM AÐ HSÍ OG MEINTU KYNJAMISRÉTTI Framkvæmdastjóri HSÍ, Sólveig Jónsdóttir, brást við þeirri gagnrýni á sínum tíma og svaraði fyrir hönd sambandsins. FRAMKVÆMDASTJÓRI HSÍ SVARAR GAGNRÝNI ÁSTHILDAR BERTHU Í gær bættist önnur rödd í hóp gagnrýnenda þegar Hafdís Iura, sem leikið hefur með kvennaliði Víkings í Grill66-deildinni undanfarin ár, birti færslu á Instagram. Þar gagnrýndi hún skort á umfjöllun um kvennaflokk í aðdraganda fjórða leiks ÍBV og Vals í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Samkvæmt Hafdísi var engin auglýsing eða kynning á leiknum að finna á Instagram-síðu HSÍ. Á sama tíma var oddaleikur Vals og FH í úrslitum karla kynntur með fjórum færslum á sama miðli. Gagnrýnin beinist að því sem leikmenn telja vera viðvarandi ójafnvægi í sýnileika karla- og kvennahandbolta á miðlum HSÍ, og hefur umræðan um jafnrétti í íþróttinni því enn á ný blossað upp. ,,Heyrðu ahhhh það var algjör óþarfi að minna á 4. leik í úrslitakeppni mfl. kvk. þar sem Valskonur gátu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn sem þær gerðu. En jú í dag var vissulega mikilvægara að minna á vInÁtTuLaNdSlEiK og svo fengum við að sjálfsögðu 4x áminningu um oddaleik mfl. kk um daginn. What´s up with that?" skrifaði Hafíd Iura við færslu sína á Instagram-sögu sína. Það má einnig benda á það misrétti að í aðdraganda úrslitaeinvígis Vals og FH var haldinn blaðamannafundur á vegum HSÍ, á Olís í Álfheimum þar sem þjálfarar og fyrirliðar liðanna mættu og voru fjölmiðlar landsins boðaðir með góðum fyrirvara. Enginn blaðamannafundur var hinsvegar í aðdraganda úrslitaeinvígis Vals og ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.