Liggur leið Benna Óskars á Hlíðarenda?
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Leikstjórnandinn, Benedikt Gunnar Óskarsson er að renna út af samningi við norska úrvalsdeildarfélagið Kolstad eftir tveggja ára dvöl hjá félaginu.

Nú er hinsvegar óljóst hvað verður um Benedikt sem er uppalinn á Hlíðarenda og sló í gegn með Val áður en hann gekk í raðir Kolstad sumarið 2024.

Samkvæmt heimildum Handkastsins er möguleiki að Benedikt komi heim líkt og bróðir hans, Arnór Snær Óskarsson gerði fyrir áramót og lék lykilhlutverk með Val í Olís-deildinni í vetur og var síðan valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar eftir að Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

Valsmenn stefna á þátttöku í Evrópudeildinni á næstu leiktíð og miklar breytingar verða á leikmannahópi liðsins. Sögusagnirnar segja að ef Benedikt Gunnar finnur sér ekki lið sem heillar hann nægilega mikið þá vilji hann frekar koma heim í Val og leika í Evrópudeildinni með sínu uppeldisfélagi.

Það yrði gríðarlegur liðsstyrkur fyrir Val ef Benedikt Gunnar myndi ákveða að snúa aftur heim eftir tvö ár í atvinnumennsku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top