

Sænski markvörðurinn Niklas Kraft er á leið aftur í sænsku úrvalsdeildina í handbolta eftir að hafa samið við Alingsås HK. Niklast Kraft snýr því aftur til Alingsås eftir að hafa leikið með liðinu tvö tímabil, árin 2018-2020. „Ég á mjög margar góðar minningar frá tímanum mínum í Alingsås, bæði innan vallar og utan, svo þetta er mjög ánægjulegt skref. Það eru sex ár síðan ég fór en það var eins og það hefði gerst í gær þegar ég gekk aftur inn í Estrad-höllina. Bæði Mattias Flodman og Dennis Sandberg voru hjá félaginu þegar ég var hér síðast og það eru mörg kunnugleg andlit í kringum liðið,“ sagði Kraft, sem er nú að leita sér að húsnæði fyrir fjölskyldu sína í Alingsås. Kraft, sem er 32 ára gamall er uppalinn hjá IFK Ystad og hefur leikið með fimm mismunandi liðum á tíu tímabilum í efstu deild. Síðasta félag hans í Svíþjóð var Ystads IF, þar sem hann varð sænskur meistari árið 2022. Alls hefur hann leikið rúmlega 300 leiki í efstu deild Svíþjóðar. Undanfarin þrjú tímabil hefur hann spilað með danska liðinu Ribe-Esbjerg HH, þar sem hann var meðal annars samherji Íslendinganna Elvars Ásgeirssonar og Ágústs Elís Björgvinssonar en Ágúst Elí og Niklas Kraft voru í harðri samkeppni sem Kraft hafði betur. Félagið segir í tilkynningu sinni að félagaskiptin hafi meðal annars verið gerð möguleg með auknu fjárframlagi frá stuðningshópnum Club 10.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.