Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins er leikstjórnandinn, Dagur Árni Heimisson á leið frá Val eftir eitt ár hjá félaginu. Dagur Árni var keyptur til Vals frá KA á metfé síðasta sumar en hann var gríðarlega eftirsóttur af liðum hér á landi. Meiðsli hafa hinsvegar sett strik í reiknininginn en Dagur Árni lék til að mynda aðeins hluta úr einum leik með Val eftir áramót. Dagur Árni lék 16 leiki með Val í Olís-deildinni í vetur og skoraði 54 mörk. Valur varð Íslandsmeistari eftir sigur á FH í oddaleik úrslitaeinvígisins. Samkvæmt heimildum Handkastsins er Dagur Árni á leið í KA þar sem KA mun kaupa leikmanninn til baka frá Val. Dagur Árni er uppalinn hjá KA og hafði leikið lykilhlutverk með liðinu áður en hann gekk í raðir Vals. Heimir Örn Árnason faðir Dags, er fyrrum leikmaður bæði Vals og KA og var í þjálfarateymi KA á síðustu leiktíð. Miklar breytingar verða á liði Vals í sumar en Agnar Smári Jónsson, Róbert Aron Hostert og Magnús Óli Magnússon hafa gefið það út að þeir hafi lagt skóna á hilluna. Magnús Óli var hinsvegar loðinn í svörum og sagðist halda því opnu að að skoða hvað hann gerði eftir sumarið. Þá hefur línumaðurinn, Þorvaldur Örn Þorvaldsson yfirgefið félagið og leikur í Póllandi á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.