Það var farið yfir hitt og þetta í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Arnar Daði Arnarsson, Styrmir Sigurðsson og Einar Ingi Hrafnsson voru staðsettir í Rapyd stúdíóinu. Meðal annars var stefna HSÍ í markaðsmálum og fleira rætt en Einar Ingi Hrafnsson, framkvæmdastjóri Aftureldingar og fyrrum leikmaður félagsins hafði ýmislegt um það mál að segja. ,,Einar þú skaust aðeins á HSÍ áðan varðandi það að fókusinn hjá HSÍ er gríðarlega mikill á landsliðið. Ég hef heyrt þetta frá fleiri aðilum síðustu daga og vikur að HSÍ er nánast orðið eitthvað landsliðssamband,” opnaði Arnar Daði umræðuna áður en Einar Ingi tók við. ,,Heildarstefnan virðist vera óljós. Mér finnst rosalegur fókus á landsliðið, sem er alveg eðlilegt, þetta eru stjörnurnar og fyrirmyndir og ákveðin þjóðarmenning sem þetta landslið karlamegin er. Það á að gera vel við þá en þá finnst mér annað svolítið gleymast.” ,,Við sjáum það í ákveðnum markaðsmálum, t.d. í úrslitakeppninni okkar þá stundum gleymist að auglýsa leiki, þetta virðist ekki vera í nægilega föstum skorðum. Á meðan, þegar það er landsleikur þá er allt á blasti. Við erum einhvernveginn að nota Olís-deildar samfélagsmiðilinn sem er með 5000 fylgjendur og er einhver stefna að spara HSÍ miðilinn? Ég átta mig stundum ekki á því.” Arnar Daði greip þá inn í og benti á að Handkastið hafi birt frétt um gagnrýni á kynjamisrétti hjá HSÍ í annað sinn á stuttum tíma í síðustu viku. Í kjölfarið hafi hann fengið símtal frá starfsmanni HSÍ sem var ósáttur við vinnubrögð Handkastsins. GAGNRÝNIR HSÍ FYRIR KYNJAMISRÉTTI Á SAMFÉLAGSMIÐLUM ,,Ég ætla bara að opinbera það að nú hefur Handkastið birt tvívegis fréttir þar sem kvenkyns leikmenn hafa gagnrýnt HSÍ fyrir kynjamisrétti. Ég bæði skiptin hefur markaðsstjóri eða starfsmaður markaðsdeildar HSÍ, Daníel Franz hringt í mig fimm mínútum síðar og í stað þess að afsaka sig eða útskýra málið þá hefur hann frekar gagnrýnt Handkastið hvernig við vinnum og afhverju við athugum ekki málið betur, þegar við erum ekki að slúðra einu né neinu heldur að varpa ljósi á það að það séu leikmenn innan kvennahandboltans að benda á kynjamisrétti. Ég ætla ekkert að nefna nein nöfn en þegar við síðan erum að setja þessar fréttir í story á Instagram þá eru leikmenn bæði í deildinni og íslenska kvennalandsliðinu að senda á okkur og þakka okkur fyrir að vekja athygli á þessu. En á sama tíma þá er fókusinn hjá starfsmanni HSÍ ekki að gera betur heldur erum við orðnir vondi kallinn því við erum að birta þetta. Afhverju erum við að minnast á eitthvað sem er svona slæmt og erum við ekki í þessu saman?” ,,Ég held að það sé ekki einbeittur brotavilji en það er engin stefna í þessu. Ég skil ekki hvað við erum að spara þessa HSÍ samfélagsmiðlasíðu,” bætti Einar Ingi við áður en Arnar Daði sagði hvaða rök hann hefur heyrt frá HSÍ afhverju HSÍ er að spara samfélagsmiðlareikning HSÍ. Nánar er hægt að hlusta á umræðuna í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.