Einar Rafn í FH

Einar Rafn Eiðsson hefur gengið í raðir FH. Handkastið sagði frá því í vikunni að Einar Rafn væri á leiðinni í FH.

Félagið staðfesti fréttirnar nú í morgun. Einar Rafn gerir eins árs samning við FH.

Einar Rafn, sem hefur leikið með KA undanfarin ár, hefur alls leikið 262 leiki fyrir Fimleikafélagið en hann gekk til liðs við FH sumarið 2012 og lék með liðinu til ársins 2021 ef frá er talið eitt ár er hann lék með Nøtterøy í Noregi.

,,Einar Rafn átti frábær ár í FH treyjunni og var m.a. kjörinn íþróttamaður FH árið 2018 og hefur hefur bæði orðið deildarmeistari og bikarmeistari með félaginu. Þess má geta að Einar Rafn hefur skorað heil 1752 mörk í deildarkeppni á Íslandi en þá eru ótalin mörk hans í úrslitakeppni og bikarkeppni,” segir í tilkynningunni frá FH.

“Við fögnum því að fá Einar Rafn heim í Krikann. Hér átti hann frábær ár og markaði spor sín í FH söguna. Einar kemur bæði með mikla reynslu og mikil gæði inn í FH-hópinn” sagði Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri við undirskriftina.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top