
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíska landsliðið í handbolta, hefur verið sektaður af Evrópska handknattleikssambandinu, EHF, eftir ummæli sem hann lét falla á Evrópumótinu fyrr á árinu. Ummælin lét Dagur falla í aðdraganda undanúrslitaleiks Króatíu gegn Þýskalands í Herning í Danmörku. Bæði Dagur og króatíska sambandið hafa sjö daga til að áfrýja niðurstöðunni. Dagur gagnrýndi skipulag mótsins harðlega á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleik Króatíu gegn Þýskalandi. Þar sagði hann að mótið hefði sýnt að EHF væri sama um leikmennina og líkti meðferð sambandsins á króatíska liðinu við „frosinn kjúkling í skyndibitakeðju EHF“. ,,Þau eru eins og skyndibitastaður, þeim er alveg sama um gæðin, þau vilja bara selja. Eða reyndar, þau eru eins og viðburðarfyrirtæki, sem pantar bara einhverja listamenn til að setja upp sýningu og flottan blaðamannafund. Það skiptir þau engu máli að við hefðum þurft að keyra í fjóra tíma frá Malmö í morgun, það skiptir þau engu máli," sagði Dagur meðal annars á blaðamannafundinum. EHF taldi ummælin brjóta gegn reglum sambandsins og var Dagur því sektaður um 4.000 evrur, sem samsvarar um 575 þúsund íslenskum krónum. Helmingur sektarinnar er þó skilorðsbundinn næstu tvö árin. Hann þarf því að greiða 2.000 evrur nú þegar, eða tæplega 290 þúsund krónur, en hinn helmingurinn fellur aðeins til ef hann verður uppvís að sambærilegu broti á skilorðstímanum. ,,Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni til þess að eitthvað hreyfðist og það er bara glatað," sagði Rúnar Kárason í hlaðvarpsþætti Sýnar um málið. Ekki var það eina málið sem EHF tók fyrir í tengslum við Króatíu á mótinu. Króatíska handknattleikssambandið fékk einnig sekt eftir verðlaunaafhendingu í leiknum um 3. sætið þar sem Króatar höfðu betur gegn Íslandi og tryggðu sér bronsverðlaunin. Ástæðan var sú að sambandið braut reglur með því að flagga fána sem ekki var leyfður samkvæmt reglum EHF við verðlaunaafhendinguna. Fyrir það var sambandið sektað um 10.000 evrur, en 2.500 evrur af þeirri upphæð eru skilorðsbundnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.