One Veszprém HC hefur ákveðið að framlengja ekki samning Bjarka Más Elíssonar og mun íslenski landsliðsmaðurinn því yfirgefa félagið eftir tímabilið eins og greint var frá í gær. Þetta staðfesti Xavi Pascual, þjálfari félagsins, samkvæmt Handball-World. Ákvörðunin tengist meðal annars framtíðarskipulagi félagsins og auknu hlutverki ungs leikmanns í sömu stöðu, Mate Gancs-Petö. Veszprém vill skapa meira pláss fyrir þennan efnilega 18 ára leikmann sem félagið bindur miklar vonir við til framtíðar. László Bartha, framkvæmdastjóri félagsins, sagði ákvörðunina tengjast langtímamarkmiðum Veszprém.„Hann er átján ára gamall og með svona hæfileika þarf hann að spila reglulega,“ sagði Bartha en hrósaði jafnframt Bjarka Má og sagði hann hafa verið framúrskarandi liðsfélaga og góðan einstakling. „Hann er frábær manneskja, frábær liðsfélagi og góður einstaklingur, en það er hluti af atvinnuíþróttum að stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir.“ Þjálfarinn Xavi Pascual lagði einnig áherslu á að ákvörðunin tengdist ekki frammistöðu Bjarka Más heldur endurskipulagninu á leikmannahóp liðsins til framtíðar. Bjarki Már gekk til liðs við Veszprém árið 2022 eftir tíma sinn hjá TBV Lemgo Lippe í Þýskalandi. Á meðan hann hefur verið hjá félaginu hefur liðið unnið bæði ungverska meistaratitilinn og bikarkeppnina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.