Tumi Steinn áfram í Austurríki
(Instagram HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach)

Tumi Steinn Rúnarsson var rétt í þessu tilkynntur sem leikmaður HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach sem leikur í austurrísku úrvalsdeildinni.

Tumi Steinn gengur til liðsins frá Alpla Hard sem leikur í sömu deild.

HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach endaði í 8.sæti deildarinnar í vetur og datt út í 8 liða úrslitum gegn deildarmeisturum Jags.

Hér að neðan má sjá tilkynningu sem félagið sendi frá sér á Instagram fyrr í dag.

„Við erum gríðarlega spennt að fá næsta nýja liðsmanninn okkar í hópinn – og hann er alls ekki óþekktur í Austurríki!

Tumi Rúnarsson kemur til okkar frá Bodensee-svæðinu til Lipizzanerheimat og mun héðan í frá færa leik okkar alvöru íslenskan eld!

Ísland hittir Lipizzanerheimat. Við getum varla beðið eftir að hefja þennan nýja og spennandi kafla með Tuma!

Sjáumst í höllinni!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top