Ungverskt stórlið í fjárhagsvandræðum
Attila KISBENEDEK / AFP

Ungverska stórliðið Ferencváros, oft nefnt FTC, stendur nú frammi fyrir alvarlegum fjárhagserfiðleikum og eru stjórnendur félagsins sagðir íhuga að draga karlaliðið úr keppni í efstu deild Ungverjalands.

Samkvæmt heimildum kemur jafnframt til greina að leggja liðið alfarið niður í stað þess að senda það niður um deildir. Á sama tíma hyggst Ferencváros beina meiri fjármunum í knattspyrnustarf félagsins og kvennalið þess í handknattleik, þó ekki sé útilokað að einnig verði gripið til niðurskurðar þar.

Kvennalið félagsins er í 2.sæti ungversku deildarinnar þegar ein umferð er eftir, tveimur stigum á eftir toppliði Gyor. Þjálfari liðsins er Daninn, Jesper Jensen. Liðið tapaði í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Metz á þessu tímabili.

FTC endaði í fjórða sæti ungversku deildarinnar á nýliðnu tímabili og tók einnig þátt í Evrópudeildinni. Þótt félagið hafi átt erfitt með að veita stórliðunum Veszprém og Pick Szeged samkeppni undanfarin ár er Ferencváros engu að síður eitt stærsta og þekktasta íþróttafélag Ungverjalands.

Ferencváros mætti til að mynda Val í riðlakeppni Evrópudeildarinnar tímabilið 2022/2023. Valur hafði betur í innbyrðisviðureignum liðanna, en Valsmenn unnu eftirminnilegan 43-39 sigur á heimavelli í fyrstu umferðinni þann 25. október 2022. Í síðari leiknum gerðu liðin síðan 33-33 jafntefli í Ungverjalandi.

Ungverski miðillinn 24.hu greinir frá því að leikmönnum hafi verið kynnt erfið staða félagsins og þeim boðin veruleg launalækkun. Tillagan felur í sér að allir leikmenn fái 300 þúsund ungverskar fórintur í mánaðarlaun, sem samsvarar rúmlega 122 þúsund íslenskum krónum. Samkvæmt frétt miðilsins gæti félagið neyðst til að hætta við þátttöku í efstu deild karla á næsta tímabili ef leikmenn samþykkja ekki niðurskurðinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top