Aron að taka við FH – Hvernig tók Steini Arndal í þetta?
J.L.Long

Á dögunum greindi Handkastið frá því fyrst allra miðla í heiminum og meðal annars á undan staðarblaðinu í Kiel að Aron Pálmarsson væri að taka við karlaliði FH af Sigursteini Arndal.

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins var rætt um þetta óvænta mál í Hafnarfirðinum en þetta kom mörgum í opna skjöldu.

,,Það var heldur betur skúbb sumarsins og jafnvel ársins á Handkastinu á dögunum þegar við sögðum frá því að Aron Pálmarsson væri að fara taka við karlaliði FH. Þetta eru heldur betur óvænt tíðindi, það er ekki lengra síðan en rúmlega hálft ár þar sem Aron Pálmarsson mætti í annað hvert hlaðvarp fyrir utan Handkastið og þar var hann spurður í nánast öllum þáttum hvort hann hefði áhuga á þjálfun og þá var svarið einfalt: Nei," sagði Arnar Daði Arnarsson þegar umræðan um málið hófst.

,,Þetta er nánast frágengið og á bara eftir að tilkynna þetta," sagði Stymmi klippari og hélt áfram:

,,Við erum mannvinir og fólk má skipta um skoðun og sem betur fer, skipti hann um skoðun. Við viljum hafa Aron Pálmarsson í kringum handboltann á Íslandi. Frá því að ætla ekki að þjálfa um áramótin, var hann kominn í aðstoðarþjálfarastarf nokkrum vikum seinna og er núna að taka við liðinu. Þetta er risa stökk en við fögnum því.”

,,En ég pæli alveg í því sem kalla kall hvernig Steini tók í þetta. Hann er ennþá á samning og nýbúinn að framlengja við FH til þriggja ára. En á sama skapi höfum við hrósað Steina í vetur fyrir það hvað hann hefur verið opinn með það að hafa leitað til reynslu meiri manna og fengið hjálp þegar illa hefur gengið. Hann hefur ekkert verið að þykjast vera með öll svörin og vita allt best. Hann virðist hafa hag félagsins að leiðarljósi og ef hann ætlar að stíga til hliðar eins og virðist vera að gerast og verða aðstoðarþjálfari þá er hann meiri maður fyrir vikið en ég er ekkert viss um að allir þjálfarar í deildinni myndu gera þetta.”

Frekari umræðu um málið er hægt að hlusta á, í nýjasta þætti Handkastsins:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top